Úthlutun úr húsafriðunarsjóði 2025 hefur nú farið fram en 178 verkefni, af 242 sem sóttu um, fengu úthlutað úr sjóðnum að þessu sinni, að heildarupphæð 265.500.000 kr. Byggðasafn Skagfirðinga sótti um og hlaut styrki fyrir eftirfarandi verkefni:
- 1.000.000 kr. Torf í arf: rit um torfrannsóknir og Fornverkaskóla
- 1.000.000 kr. Áshús, Glaumbæ, Skagafirði: almálun
- 2.500.000 kr. Torfhús í Húnavatnssýslum
- 3.000.000 kr. Fornverkaskólinn: viðhald handverkshefða
Alls 7.500.000 kr.
Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn!