Opnunartími
- 20. maí - 31. ágúst: Daglega kl. 10:00 - 18:00
- 1. september - 20. september: Daglega kl. 10:00 - 16:00
- 21. september - 4. október: Virka daga kl. 10:00 - 16:00
- 4. október - 19. maí: Eftir samkomulagi
Hópar
- Fjöldi: Kaffihúsið getur tekið 35 manns í sæti í senn. Fyrir stærri hópa er hægt að skipta hópnum upp þannig að helmingur hópsins heimsæki safnið á meðan hinn helmingurinn borðar.
- Bókun: Athugið að hópar þurfa að panta með a.m.k. tveggja daga fyrirvara á netfangi safnsins byggdasafn@skagafjordur.is eða í síma 453 6173.
- Yfir vetrarmánuðina er hægt að bóka kaffistofuna fyrir hópa með a.m.k. fimm daga fyrirvara.
Um kaffihúsið
Í Áshúsinu er hugguleg kaffistofa sem gefur safngestum tækifæri til að njóta veitinga að hætti ömmu og mömmu og upplifa stemningu liðins tíma.
Boðið er upp á veitingar eins og á borð voru bornar hjá húsmæðrum á 20. öld og ilmar húsið af nýbökuðu bakkelsi, kaffi og heitu súkkulaði. Einnig er boðið upp á hádegismat. Í húsinu má líka sjá sýningar safnsins sem gefa kaffihúsinu skemmtilega og hlýlega umgjörð og mætti segja að kaffistofan sjálf sé hluti af sýningunum þar sem umgjörð hennar er öll í anda sparistofa á 20. öld.
Ef þig langar í gamaldags góðgæti skaltu endilega koma við!
Matseðlar 2025
Matseðill 2025
Hópatilboð fyrir fyrirfram bókaða hópa 2025
Aðgengi
Hjólastólaaðgengi: Athugið að hægt er að komast á hjólastól inn um bakdyr hússins. Hafið samband við starfsfólk til að það geti opnað bakdyrnar og sett upp ramp.
![]() |
Matarkistan Skagafjörður - skagfirskt hráefni og matarhefðir. |
![]() |
|