Byggðasafn Skagfirðinga var stofnað þann 29. maí árið 1948. Fyrsta stofnskrá safnsins er frá árinu 1948 en var tekin upp árið 1999 eftir að sveitarfélögin í Skagafirði voru orðin tvö. Áður tilheyrði safnið sýslunni og síðar héraðsnefnd, sem fóru með stjórn hreppa og kaupstaða innan sýslumarkanna. Byggðasafn Skagfirðinga er eign Sveitarfélagsins Skagafjarðar sem annast rekstur safnsins.
Starfsemi safnsins fylgir stofnskrá og safnstefnu eins og hún er skilgreind í samnefndum gögnum. Þar eru markmið safnsins tilgreind, sem og stefna í söfnun, varðveislu, rannsóknum, miðlun og safnfræðslu.
Skrifstofur safnsins eru í prestssetrinu norðan við Glaumbæjarkirkju og sýningar safnsins eru á safnsvæðinu í Glaumbæ. Varðveislurými safnsins er á Sauðárkróki. Lesa má nánar um safnsvæðið í Glaumbæ hér.