Fara í efni

Torfarfurinn: Málþing / The Turf Heritage: Symposium

Málþingið Torfarfurinn - Varðveisla byggingarhandverks verður í Kakalaskála í Skagafirði þann 4. september næstkomandi. Umfjöllunarefnið er varðveisla byggingarhandverks þar sem torfarfurinn verður í fyrirrúmi. Dagskrá málþingsins má sjá meðfylgjandi.

Málþingið fer fram á milli tveggja námskeiða Fornverkaskólans en þátttakendur námskeiðanna að þessu sinni verða einstaklingar sem okkur þótti gullið tækifæri að stefna saman vegna starfa þeirra sem tengjast varðveislu byggingarhandverks, bæði innanlands og utan, m.a. frá Þjóðminjasafni Íslands, Minjastofnun Íslands, Húsverndarstofu og einnig handverksmenn (kennarar og nemendur) frá Institutt for Arkitektur og teknologi í NTNU (Norges Teknisk Naturvitenskapelige Universitet).

Málþingið fer fram á ensku. Aðgangur á málþingið er ókeypis og það opið öllum áhugasömum. Farið er fram á skráningu, sem fer fram hér á heimasíðu safnsins fyrir 1. september:

Ath. Skráningu á málþingið er lokið. 

Málþingið er styrkt af Minjastofnun Íslands.

🇬🇧🇬🇧🇬🇧

The symposium The Turf Heritage - The Preservation of Traditional Building Methods will be held in Kakalaskáli in Skagafjörður on September 4th. The topic will be the preservation of traditional building methods, where the turf heritage will be in the spotlight. The program has been published here.

The symposium will take place between two courses from the Heritage Craft School. We wanted to take the opportunity to hold this symposium as the participants of the courses are individuals with jobs related to the preservation of traditional building methods, both in Iceland and abroad, i.a. from the National Museum of Iceland, The Cultural Heritage Agency of Iceland, the Building Preservation Centre, and also craftsmen (teachers and students) from the Institutt for Arkitektur og teknologi at NTNU (Norges Teknisk Naturvitenskapelige Universitet).

The symposium will be in english. The symposium is free and open to all interested parties, registration is here until September 1st:

The Registration for Symposium has finished.

The symposium is funded by The Cultural Heritage Agency of Iceland.