Fjallað verður um torfarfinn frá ýmsum hliðum á málþingi í Kakalaskála í Skagafirði þann 8. nóvember næstkomandi, frá kl. 11-15.
Málþingið er tileinkað Sigríði Sigurðardóttur í tilefni af stórafmæli hennar en hún varð sjötug á dögunum. Torfarfurinn hefur löngum verið Sirrí hugleikinn en auk þess að koma á fót Fornverkaskólanum þá hefur hún stundað umfangsmiklar rannsóknir og miðlun á torfarfinum um áratuga skeið, skrifað meistararitgerð, gefið út rit, skýrslur og unnið að sýningagerð.
Dagskrá:
11:00 | Setning málþings – Harpa Þórsdóttir þjóðminjavörður |
11:10 | „Hefðin sem lifir í höndunum“: Samningur UNESCO um varðveislu menningarerfða frá 2003 og lifandi handverksþekking - Sigurlaug Dagsdóttir, verkefnisstýra vefsins Lifandi hefða hjá Þjóðminjasafni Íslands |
11:30 | Skagfirska torfhúsarannsóknin: niðurstöður og lærdómur – Bryndís Zoëga, landfræðingur og fyrrv. verkefnastjóri hjá Byggðasafni Skagfirðinga |
11:50 | Torfarfurinn sem viðfangsefni stjórnsýslunnar – María Gísladóttir, arkitekt hjá Minjastofnun Íslands |
12:10 | Spurningar og umræður |
12:20 | Hádegisverður |
13:00 |
Þrívíddarskönnun á torfi og torfverkfærum - Alex Casteel og Doug Daniels, frá UCLA háskóla í Bandaríkjunum (erindið fer fram á ensku)
|
13:20 | PVC dúkar í torfhúsum - Helgi Sigurðsson, hleðslumeistari hjá Fornverki ehf. |
13:40 | Torf- og grjóthleðslur á ferðamannastöðum - Gunnar Óli Guðjónsson, landslagsarkitekt hjá Stokkum og steinum ehf. |
14:00 | Þarfasti þjónn húsasmiðsins, notaður við aðdrætti við húsbyggingar - Snædís Traustadóttir húsasmíðameistari |
14:20 | Spurningar og umræður |
14:30 | Kaffi, kleinur og spjall |
15:00 |
Málþingi slitið
|
Fundarstjóri: Berglind Þorsteinsdóttir, safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga
Aðgangur á málþingið er ókeypis og það opið öllum áhugasömum. Farið er fram á skráningu hér fyrir 6. nóvember.
Boðið verður upp á streymi af málþinginu.
Boðið verður upp á streymi af málþinginu.
Málþingið er styrkt af húsafriðunarsjóði.
Við hlökkum til að sjá ykkur!