Fara í efni

Mark Watson dagurinn í Glaumbæ

Í tilefni af afmæli enska aðalsmannsins Mark Watson stendur Byggðasafn Skagfirðinga fyrir dagskrá í Glaumbæ fimmtudaginn 18. júlí. Watson var mikill Íslandsvinur og eigum við honum margt að þakka, þar með talið rausnarleg peningagjöf til viðgerða á gamla torfbænum í Glaumbæ árið 1938 sem átti sinn þátt í að bærinn hefur varðveist.
 
Watson hefur jafnframt verið titlaður bjargvættur íslenska fjárhundsins og er afmælisdagur hans "Dagur íslenska fjárhundsins".
Af þessu tilefni ætla íslenskir fjárhundar að heimsækja safnið. Hundarnir eru ljúfir og spakir og óhætt er að klappa þeim með leyfi eigenda. Evelyn Ýr Kuhne mun auk þess fræða gesti um íslenska fjárhundinn og segja frá sýningu um íslenska fjárhundinn sem mun opna á næstunni á Lýtingsstöðum. Í tilefni dagsins er frítt á safnið fyrir eigendur íslenskra fjárhunda í fylgd með hundunum. 

Ungum gestum verður boðið á bak á hestum frá Syðra–Skörðugili. Ókeypis aðgangur er fyrir börn yngri en 18 ára og við minnum lögheimilisíbúa Skagafjarðar á ársmiðann, sem gildir í eitt ár frá kaupum hans óháð fjölda heimsókna. Opið er á kaffihúsi safnsins í Áshúsi en þar er alltaf heitt á könnunni og nýbakað góðgæti.

Verið velkomin í Glaumbæ!
 
⚜⚜⚜
To celebrate the birthday of the Englishman Mark Watson, the Skagfjörður Heritage Museum will host an event at Glaumbær on July 18th. Watson had great interest in Iceland and generously donated money for repairs to the old turf farm at Glaumbær in 1938. The turf farm is preserved today because of Watson's contributions.
 
Watson is also recognized as the savior of the Icelandic Sheepdog. Therefore, his birthday is generally celebrated as "The Icelandic Sheepdog Day". To celebrate, Icelandic sheepdogs will be visiting the museum area. The dogs are sweet, calm, and friendly. It is safe to pet them with the owners permission. Evelyn Ýr Kuhne will tell guests about the Icelandic Sheepdog, and an exhibition about the Icelandic Sheepdog that will be opening soon in Lýtingsstaðir. On the occasion the access to the museum area is free for Icelandic Sheep dog owners accompanied by their dogs. In the museum's café, Áshús, coffee, tea and baked goods are available as always.
 
Welcome to Glaumbær!