Fara í efni

Arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands kom í heimsókn

Inga Katrín, verkefnastjóri Fornverkaskólans, kynnti torf og mismunandi hleðslugerðir.
Inga Katrín, verkefnastjóri Fornverkaskólans, kynnti torf og mismunandi hleðslugerðir.
Dagana 17-18. september fengum við í heimsókn nemendahóp af arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands. Hópurinn kom í Skagafjörð m.a. til að kynnast torfarfinum okkar en eins og margir vita er af nógu að taka í þeim efnum í firðinum. Dagskráin hófst með kynningu á Víðimýrarkirkju. Þá var farið á skrifstofuna í Glaumbæ þar sem hópurinn fékk kynningu á torfi, mismunandi hleðslugerðum og verkfærum svo fátt eitt sé nefnt, og loks var gengið um sýningarnar á safnsvæðinu.
 
Á miðvikudeginum fór hópurinn í Tyrfingsstaði þar sem þeir kynntust Fornverkaskóla- og Tyrfingsstaðaverkefnunum, gripu í torftöku og -ristu með Helga Sigurðssyni, kennara á torfhleðslunámskeiðum Fornverkaskólans og spreyttu sig á uppmælingum og skissu-teikningum í gömlu húsunum. Kalt var og blautt þann daginn, en nemendur létu það ekki á sig fá og voru afar iðin og áhugasöm. Deginum lauk með heimsókn í gamla bæinn á Stóru-Ökrum, þar sem Sigríður Sigurðardóttir sagði frá sögu staðarins og spjallaði um mismunandi grindargerðir í timburhúsum frá fornu fari.
 
Við þökkum nemendahópnum og kennurum við Listaháskóla Íslands kærlega fyrir skemmtilega og gefandi samveru, Stínu og Sigga á Tyrfingsstöðum fyrir hlýjar móttökur, Helga fyrir kennsluna og Sirrí fyrir kynninguna á Stóru-Ökrum!