Fara í efni

Á annað hundrað komu á Hrekkjavöku

Á föstudaginn komu á annað hundrað gestir á hrekkjavöku í Glaumbæ þar sem upplifa mátti ógurlega stemningu í gamla bænum, hlusta á skagfirskar draugasögur gæddar lífi með skuggalísum, gæða sér á hryllilega bragðgóðum veitingum í Áshúsi og hleypa út skelfilegri sköpunargleði í Áshúskjallara.
Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og vonum að þið hafið skemmt ykkur vel!
Þökkum safnasjóði fyrir að styrkja viðburðinn.