Húsafriðunarsjóður styrkir viðhaldsaðgerðir í Áshúsi um 400 þús. kr., og í Gilsstofu um 200 þús. kr. Mála þarf glugga og hurðir á báðum húsum og fernísera gólfin á miðhæð Áshússins. Þá veitti sjóðurinn 700 þús. kr. til Tyrfingsstaðaverkefnisins, sem er á vegum safnsins.
Fornminjasjóður veitir 350 þús. kr. til 3. áfanga strandminjaskráninga við austurstönd Skagafjarðar og 450 þús. kr. í 8. áfanga eyðibyggðarannsókna (byggðasögurannsókna).