Fara í efni

Gestir safnsins á árinu 2013

Sýningargestir safnsins á árinu 2013 eru samtals 39.344. Gestir gamla bæjarins í Glaumbæ eru orðnir 36.549. Í fyrra voru þeir 32.813. Fjölgunin á milli ára er 3.736 manns, sem er töluvert umfram áætlun (hún gerði ráð fyrir 1000). Gestum á sýningum og í upplýsingaþjónustu í Minjahúsinu á Sauðárkróki fjölgaði einnig. Þangað komu 558 fleiri en í fyrra, eða 2.795.