Fara í efni

Frír aðgangur í Minjahúsinu

Rekið er upplýsingaver í Minjahúsinu og er það opið frá 12-19 alla daga sumars. Verkstæðissýningarnar, sem eru í húsinu, eru opnar á sama tíma.

Jafnframt upplýsingagjöf til ferðamanna vinna starfsmenn safnsins við að ljósmynda safnmuni sem komið hefur verið fyrir í sýningarsal hússins. Gestir upplýsingavers geta nú gengið um sýningarnar án þess að greiða aðgang.