Fara í efni

Á málþingi til heiðurs Kristjáni Eldjárn

Bryndís Zoëga og Guðmundur St. Sigurðarson voru meðal níu framsögumanna í málþingi til heiðurs Dr. Kristjáni Eldjárn 2014, sem Félag fornleifafræðinga stóð fyrir í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands í dag. Guðmundur hélt erindi um byggðaþróun út frá fornleifaskráningu undir yfirskriftinni Frá sjóbúðum til selja og erindi Bryndísar, Geym vel það ei glatast má, fjallaði um fornminjar í hættu. Það er ekki á hverjum degi sem rannsóknastarfsemi safnsins fær jafn mikla athygli og við erum stolt af því.